Dagur stýrir borginni í jólapeysu til stuðnings Barnaheill

Menning og listir Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mætti í morgun til starfa í jólapeysu. Hann safnar áheitum til stuðnings samtökunum Barnaheill sem standa fyrir átakinu. Að þessu sinni er það forvarnarverkefni gegn einelti.

Í ár - árið 2014 er safnað fyrir forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum, þangað sem gjarnan má rekja rætur eineltis. Verkefnið nefnist Vinátta og er danskt að uppruna. Það er byggt á nýjustu rannsóknum um einelti og hefur gefið afar góða raun í Danmörku og víðar þar sem það er notað.

Nokkrir vaskir einstaklingar hafa þegar tekið áskorunum og gert ýmislegt sem er aðeins, eða jafnvel nokkuð mikið, út fyrir þægindaramma þeirra. Allt frá því að fara á skauta í jólapeysu, til þess að labba aftur á bak upp Esjuna, en Dagur ætlar að stýra borginni í einn dag í jólapeysunni. Dagur er íklæddur peysu með hreindýri og skartar hún bjöllum sem klingja þegar hann þarf að hlaupa milli funda. Hann byrjaði daginn á því að bjóða nýjustu jólavættirnar velkomnar, tvíburana Sighvat og Sturlu. Að því búnu fór hann rakleiðis í borgarráð og framundan eru ýmsir fundir varðandi margvísleg mál.

Nánari upplýsingar um átakið jólapeysan 2014 má nálgast á síðu Barnaheilla.