Neysla áfengis- og vímuefna meðal unglinga í grunnskólum er lægst á Íslandi miðað við önnur lönd í Evrópu. Reykjavík mun kynna aðferðafræðina á bak við þennan góða árangur fyrir öðrum borgum á alþjóðlegri ráðstefnu, Cities for Youth, sem haldin verður á Hilton Nordica dagana 19. – 20. mars.
Rannsóknir sýna að árið 1998 höfðu 42% af 15 – 16 ára unglingum orðið ölvaðir síðustu 30 daga en árið 2013 var þetta hlutfall komið niður í 5% ungmenna. Daglegar reykingar og kannabisreykingar hafa einnig lækkað mikið á þessum árum.
Alþjóðlegar rannsóknir sýna að áfengis- og vímuefnanotkun meðal ungmenna er vaxandi vandamál í hinum vestræna heimi og þá sérstaklega í Austur-Evrópu. Forsvarsmenn margra borga hafa ítrekað spurt: Hvernig tókst Reykjavíkurborg að ná svo góðum árangri þegar kemur að vímuefnaneyslu unglinga? Frá árinu 2006 hefur aðferðafræðin verið kynnt í mörgum borgum Evrópu í gegnum verkefnið "Youth in Europe - A Drug Prevention Programme". Því var ákveðið að Reykjavíkurborg myndi boða til ráðstefnu hér á landi og kynna hvernig unnið hefur verið að forvörnum.
Reykjavíkurborg ákvað að taka á vímuefnaneyslu unglinga árið 1998 og í kjölfarið var rannsakað hvaða þættir hefðu áhrif á neysluna. Þegar því var lokið var unnin forvarnastefna til að efla starf sem kemur í veg fyrir neyslu. Það sem einkennir forvarnastarf í Reykjavík er að það byggir á samstarfi vísindamanna, þeim sem vinna að forvarnamálum við skólasamfélagið, frjáls félagasamtök og foreldra.
Forvarnir jafnt sem inngrip byggjast á niðurstöðum rannsókna sem segja til um hvaða þættir eru verndandi og hvað beri að forðast. Í ljós hefur komið að unglingar sem verja miklum tíma með foreldrum sínum, taka þátt í skipulögðum frístundum og fá góðan stuðning jafnaldra sinna standa best að vígi.
Á ráðstefnunni Cities for Youth (Borgir fyrir ungmenni), sem haldin verður í Reykjavík dagana 19. og 20. mars munu þeir sem mótað hafa stefnuna, erlendir og innlendir vísindamenn sem og sérfræðingar Reykjavíkurborgar í forvarnamálum, skýra frá því hvernig unnið hefur verið að áfengis- og vímuefnavörnum á síðustu 15 árum.
Dagskrá og nánari upplýsingar um ráðstefnuna
Facebókarsíða: https://www.facebook.com/citiesforyouth2014