Burt með rusl og hundaskít segja börnin á Laufásborg

Umhverfi Skóli og frístund

""

Sjö fimm ára drengir af Laufásborg áttu fund með borgarstjóra í morgun og vildu þeir ræða málefni borgarinnar. Það sem var þeim efst í huga var umgengnin í borginni, ruslið og hundaskíturinn.

Drengirnir komu fótgangandi í fylgd leikskólakennara af Laufásborg klukkan 10 í morgun. Drengirnir þurftu að bíða í smá stund þar sem borgarstjóri var á öðrum fundi, en þeir létu það ekki á sig fá, heldur fóru að leika sér í leikkrók sem er fyrir framan skrifstofuna.

Þegar inn á skrifstofuna kom þá voru drengirnir mjög heillaðir af Tjörninni, horfðu yfir hana og á fuglana en bentu strax á að það væri líka rusl í Tjörninni. Ruslið væri bara alls staðar. Borgarstjóri tók fram bréfið sem þeir höfðu sent og las það upp. 

Dagur ræddi málið við drengina en svo komust þeir að samkomulagi um að þeir myndu tala við krakkana á leikskólanum og segja þeim að henda ruslinu í ruslaföturnar og ef þeir ættu hund að hirða upp hundaskítinn en ekki skilja hann eftir á götunni. Þá ætluðu þau að segja krökkunum að ræða þetta við foreldrana og svo ættu foreldrarnir að ræða við aðra foreldra um málið. Þannig væri hægt að ganga betur um borgina okkar og hún liti líka miklu betur út. Borgarstjóri sagði að starfsmenn Reykjavíkurborgar myndu svo sjá um að tæma ruslatunnurnar. Þetta voru drengirnir ánægðir með, gæddu sér svo á ávaxtasafa, flatkökum og ávöxtum, og héldu svo aftur upp á Laufásborg.

Á Facebooksíðu Reykjavíkurborgar er myndband frá fundinum.