Undanfarnar tvær vikur hefur allt verið á fullu við að finna lausnir til að losna við klaka á keppnis- og æfingavöllum íþróttafélaga í Reykjavík.
Þegar klaki hefur legið yfir grasi í þrjátíu daga er hætta á að grasið kali og skemmist. Það að klaki liggi á íþróttavöllum í svo langan tíma er nánast óþekkt vandamál í Reykjavík. Þó voru vandræði í fyrra á Fjölnisvelli.
ÍTR kallaði alla vallastjóra íþróttafélaga saman til skrafs og ráðagerðar. Á þeim fundi komu fram ýmsar hugmyndir sem hafa verið prófaðar í vikunni en með litlum árangri.
ÍTR í samvinnu við SÍGÍ, samtök íþrótta- og golfvallastarfsmanna fékk Bjarna E. Guðleifsson prófessor til að skoða nokkra velli á höfuðborgarsvæðinu og fjalla síðan um klaka og kal í grasi. Bjarni hefur áratuga reynslu í rannsóknum á kali á grasi. Fram kom í máli Bjarna að ástand vallanna væri orðið mjög slæmt og að bregðast þyrfti fljótt við.
Í gær fimmtudag voru því prófaðir sjö tonna valtarar með víbringi til að brjóta upp klakann en það tókst ekki. Nú í morgun föstudag var haldið áfram að reyna að leysa vandann og var gerð tilraun með gröfur sem búið var að smíða á sérútbúnar tennur til að brjóta upp klakann og það tókst mjög vel. Nú er búið að smíða samskonar búnað á tvö önnur tæki og verður unnið á fullu alla helgina við að brjóta upp klaka til að koma súrefni inn á vellina.