Brúarskóli fagnaði tíu ára afmæli

Skóli og frístund

""

Tíu ára afmælishátíð var haldin í Brúarskóla 23. maí. Dagurinn hófst með leikjum nemenda og starfsfólks á skólalóðinni, en síðdegis fylltist húsið af gestum. 

Á skólalóðinni var sett upp trambólín og boðið upp á smákökur sem nemendur höfðu bakað. Í hádeginu var svo grillað og Ísbíllinn mætti  á svæðið við mikinn fögnuð nemenda og starfmanna.

Síðdegis var opið hús og mættu fjölmargir gestir: gamlir nemendur og  fyrrverandi starfsmenn, foreldrar, samstarfsaðilar, fulltrúar borgarstjórnar og skóla – og frístundasviðs og glöddust með nemendum og starfsfólki. Hver starfsstöð og nemendur kynntu sitt starf. Aaron Ísak nemandi  í 10. bekk opnaði hátíðina og þau Bjarki Fannar í 10. Bekk og Erna í 9. bekk fluttu tónlist með aðstoð Kristjáns Sigurðssonar kennara. Dagurinn heppnaðist hið besta og er öllum þakkað sem komu og glöddust með nemendum og starfsfólki Brúarskóla á afmælinu.