Um áramótin taka gildi breytingar á reglum um niðurgreiðslu vegna daggæslu og á reglum um leikskólaþjónustu í Reykjavík sem miða að því að þau börn sem eru tímabundið án kennitölu og lögheimils eða skráð utangarðs geti sótt um leikskólapláss og þjónustu dagforeldra.
Skilyrði er að foreldrar og barn séu með fasta búsetu í Reykjavík, skv. skilgreiningu laga um lögheimili nr. 21/1990, og að gera megi ráð fyrir, að lögheimili þegar það er fengið, verði í Reykjavík. Umsókn um undanþágu með tilskildum gögnum skal að jafnaði senda á netfangið sfs@reykjavik.is.
Breytingin á reglunum er gerð í kjölfar samþykktar skóla- og frístundaráðs frá 5. nóvember sl.
og ábendingar frá umboðsmanni borgarbúa þar sem sagði m.a.
„Aðstæður barna sem eru án kennitölu eða skráð utangarðs geta verið margvíslegar en eiga þó yfirleitt það sameiginlegt að vera fremur bundnar aðstæðum foreldris en þeirra sjálfra. Dæmi eru um að foreldri bíði eftir að umsókn um dvalarleyfi verði afgreidd með lögformlegum hætti en á meðan er hvorki gefin út lögheimilisskráning til barns né foreldris. Umsókn um dvalarleyfi getur tekið langan tíma í meðferð og því felst ákveðin þjónustuhindun í ákvæði í reglum um leikskólaþjónustu.”