Breiðholtsbylgjan sveiflast

Velferð Skóli og frístund

""

Þverfaglegur starfsdagur allra starfsstaða borgarinnar í Breiðholti var haldinn í dag undir heitinu Breiðholtsbylgjan. Um átta hundrað manns tóku þátt í þessum sameiginlega starfsdegi. 

Breiðholtsbylgjan er nú haldin annað árið í röð. Á þessum sameiginlega starfsdegi allra fagsviða Reykjavíkurborgar var boðið upp á fjölmargar vinnusmiðjur, svo sem um markmiðssetningu, mannréttindi og staðalmyndir, gildi íþrótta og vellíðan í starfi. Fagvettvangurinn er töluvert fjölmennari en í fyrra enda var nú fleirum boðið að vera með, starfsmönnum í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, fulltrúum kirkju, íþróttafélaga og fleiri stofnana. 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ávarpaði þátttakendur við setningu Breiðholtsbylgju og sagði meðal annars að slíkur þverfaglegur fagvettvangur styrkti innviði allrar grunnþjónustu í Breiðholtinu, efldi starfsfólkið faglega og skapaði ný tengsl fyrir hvern og einn innan hverfisins og borgarkerfisins. Á eftir borgarstjóra steig Þorsteinn Gunnarsson leikari á svið og fór með gamanmál, meðal annars um það þegar hann sjálfur var bæjarstarfsmaður. 

Þeir sem stjórnuðu fagsmiðjunum á Breiðholtsbylgjunni eru flestir starfsmenn borgarinnar þannig að um skemmtilega þekkingarmiðlun á jafnréttisgrundvelli var að ræða. 

Breiðholtsbylgjan snýst fyrst og fremst um að fólk fær tækifæri til að hittast og eiga faglega umræðu þvert á fagsvið borgarinnar. Allt rímar það við áherslur í Breiðholtsverkefninu svokallaða sem snýst um valdeflingu, samþættingu og framþróun í hverfinu.