Bréf til bjargar lífi

Velferð Skóli og frístund

""

Bréfamaraþoni Íslandsdeildar Amnesty International verður hrint úr vör laugardaginn 6. desember frá 13-18 á skrifstofu samtakanna, Þingholtsstræti 27.

Bréfamaraþonið er einn stærsti mannréttindaviðburður í heiminum. Fólk um víða veröld kemur saman á aðventunni og sendir bréf til yfirvalda sem brjóta gróflega mannréttindi. Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir liggja í bréfamaraþoninu en í fyrra sendu þeir rúmlega 50.000 bréf og kort. Íslandsdeild Amnesty International vonar að þátttakan verði ekki síðri nú og að fjölmenni líti við í Þingholtsstrætinu á laugardaginn.

Boðið verður upp á aðventustemningu, kruðerí og kakómjólk fyrir yngstu kynslóðina en fólk getur lagt 12 málefnum lið með því að ljá þeim undirskrift sína. Sigríður Thorlacius, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Svavar Knútur koma í Þingholtsstrætið og flytja tónlist.

Reykjavíkurborg tekur þátt í baráttunni gegn dauðarefsingum í heiminum með því að gerast aðili að Lífsborg gegn dauðarefsingunni (Cities for Life - Cities against the Death Penalty). Borgin styður baráttu Amnesty International og því er hægt að senda Bréf til bjargar lífi frá Ráðhúsi Reykjavíkur, þjónustuveri í Höfðatorgi, Borgarbókasafninu við Tryggvagötu, í Grafarvogi og Gerðubergi frá 1. - 17. desember.

Amnesty International hefur barist gegn dauðarefsingunni í 50 ár og mun halda þeirri baráttu á lofti allt þar til að þessarri ómannlega og grimmilega refsing heyrir sögunni til. Eitt þeirra mála sem tekið verður fyrir á bréfamaraþoninu í ár er mál ungs manns frá Nígeríu sem dæmdur var til dauða með hengingu fyrir símstuld.

Bréfaskrifin bera árangur því á hverju ári eiga sér stað raunverulegar breytingar á lífi þolenda mannréttindabrota. Fólk sem er ranglega fangelsað er leyst úr haldi. Pyndarar eru látnir svara til saka og fólk í fangelsum fær mannúðlegri meðferð. Ekki láta þitt eftir liggja á aðventunni í baráttunni fyrir betri heimi.

Meira um bréfamaraþonið á heimasíðu Íslandsdeildar Amnesty International