Börnin ráða matnum í Fossvogsskóla

Skóli og frístund

""

Krakkarnir í nemendaráði Fossvogsskóla ráða matseðli vikunnar tvisvar sinnum á vetri; í desember og apríl.

Matseðillinn er þessar tvær vikur algerlega á forsendum barnanna en nemendaráðið kannar áður óskir félaga sinna í skólanum og setur saman matseðil í ljósi þeirra.

Í síðustu viku fyrir páska verður næsti nemendamatseðill og verður þá boðið upp á hinn sívinsæla grjónagraut á mánudegi, á þriðjudegi verða pacoskeljar með salsasósu og salati í matinn, á miðvikudegi kjúklingar með frönskum, á fimmtudegi verður kakósúpa með tvíbökum á boðstólum og vikunni lýkur svo með pizzuveislu á föstudegi.

Nemendaráðið hefur að undanförnu fundað með Halldóri Halldórssyni kokki og farið yfir matseðilinn. Hann hefur frætt þau um hvernig hann undirbýr hverja máltíð, hvaða næringargildi hún hefur og hvernig best sé að reiða matinn fram. Þegar nemendamatseðillinn verður á boðstólum munu börnin aðstoða starfsfólk mötuneytisins við að bera fram matinn og ganga frá í mötuneytinu.