Börnin í Draumalandi kunna vel að meta vikulegan útidag og útieldun. Draumaland stefnir að því að verða heilsueflandi frístundaheimili.
Liður í þeirri vinnu er að bjóða alfarið upp á hollan og góðan mat í síðdegishressingunni. Einnig var ákveðið að hafa einn útidag í viku í vetur, sama hvernig viðrar, og hefur það gengið vel. Í fyrstu voru börnin alltaf að spyrja hvenær þau mættu koma inn en þau voru fljót að venjast þessu nýja fyrirkomulagi og finnst útivistin skemmtilegur þáttur í frístundastarfinu.
Á útidögum er börnunum boðið upp á margs konar afþreyingu á skólalóðinni s.s. fótbolta og fimleikaæfingar undir handleiðslu starfsmanna. Til að gera útiveruna enn skemmtilegri er eldað úti tvisvar í viku. Draumaland býr að því að vera með stóra og gróna skólalóð við Austurbæjarskóla og því er auðvelt að skapa þar skemmtileg ævintýri með börnunum á hverjum degi.