Börn án kennitölu fái leikskólavist

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð lýsti á fundi sínum 5. nóvember yfir eindregnum vilja til að bjóða þeim börnum leikskólaþjónustu sem eru án kennitölu eða óskráð í þjóðskrá. Til að svo megi verða þarf að breyta reglum skóla- og frístundasviðs um leikskólaþjónustu.  

Ákvörðun ráðsins er til komin vegna nokkurra tilkynninga sem borist hafa umboðsmanni borgarbúa er varða börn sem ekki hafa fengið úthlutað kennitölu eða eru óskráð í þjóðskrá. Í ábendingu umboðsmanns segir m.a.:  „Aðstæður barna sem eru án kennitölu eða skráð utangarðs geta verið margvíslegar en eiga þó yfirleitt það sameiginlegt að vera fremur bundnar aðstæðum foreldris en þeirra sjálfra. Dæmi eru um að foreldri bíði eftir að umsókn um dvalarleyfi verði afgreidd með lögformlegum hætti en á meðan er hvorki gefin út lögheimilisskráning til barns né foreldris. Umsókn um dvalarleyfi getur tekið langan tíma í meðferð og því felst ákveðin þjónustuhindun í ákvæði í reglum um leikskólaþjónustu.”



Í reglum um leikskólaþjónustu er gert ráð fyrir að umsókn um leikskóla sé rafræn og á grundvelli kennitölu og lögheimilis í Reykjavík. Skóla- og frístundasvið hefur því verið falið að skilgreina nýtt verklag um undanþágu frá innritunarreglum og hvernig staðið skuli að þjónustu við þann hóp barna sem eru án kennitölu og lögheimilis og falla því utangarðs.