Reykjavíkurborg hefur verið tilnefnd til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs sem veitt verða á þessu ári einhverju sveitarfélagi, borg eða staðbundnu samfélagi.
Skilyrði fyrir tilnefningu voru að sveitarfélagið hefði annað hvort í starfsemi sinni lagt mikið af mörkum til umhverfisverndar eða lagt sig fram á einhverju ákveðnu sviði umhverfismála. Umhverfis- og skipulagssvið hefur umsjón með umsókn Reykjavikurborgar til þessara verðlauna og lagði áherslu á fjölbreytileika umhverfisstarfs hjá borginni.
Ákvörðun um tilnefningar er tekin af norrænni dómnefnd sem er skipuð þrettán einstaklingum, tveimur frá hverju norrænu ríkjanna og einum frá Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum. Tilkynnt verður um verðlaunahafann miðvikudaginn 29. október 2014 í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Stokkhólmi. Nánari upplýsingar um verðlaunin og það sem er á döfinni fram að verðlaunaafhendingunni er að finna á www.norden.org.
Viðtal við Ólöfu Örvarsdóttur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.
Tilnefningarnar þrettán eru hér í stafrófsröð:
Gjógv (Færeyjar)
Sveitarfélagið Gladsaxe (Danmörk)
Sveitarfélagið Hallstahammar (Svíþjóð)
Sveitarfélagið Ii / Ijo (Finnland)
Borgin Jyväskylä (Finnland)
Sveitarfélagið Lejre (Danmörk)
Sveitarfélagið Middelfart (Danmörk)
Reykjavíkurborg (Ísland)
Saligaatsoq-Avatangiiserik-verkefnið (Grænland)
Bærinn Skaftholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi (Ísland)
Snæfellsnes, samstarf fimm sveitarfélaga (Ísland)
Stofnunin Sólheimar (Ísland)
Sveitarfélagið Växjö (Svíþjóð)