Borgin og verkalýðshreyfingin vinna saman að húsnæðismálum

Velferð Skipulagsmál

""

Fulltrúar Reykjavíkurborgar og verkalýðshreyfingarinnar hafa byrjað vinnu við að stuðla að stofnun nýrra húsnæðisamvinnufélaga. Markmiðið er að stofnuð verði félög til að byggja og reka leiguíbúðir á viðráðanlegu verði til að leysa bráðan húsnæðisvanda í Reykjavík. Í starfshópi um málið sitja fulltrúar Reykjavíkurborgar, ASÍ, BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands.

Ný húsnæðisstefna Reykjavíkurborgar kveður á um að hafin verði bygging á 2.500 – 3.000 nýjum leigu- og búseturéttaríbúðum á næstu þremur til fimm árum í samvinnu við traust húsnæðis- og byggingarsamvinnufélög og verkalýðshreyfinguna.

Í hópnum sitja fyrir hönd Reykjavíkurborgar: Hrólfur Jónsson, formaður hópsins, frá skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar, Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar og Ellý A. Þorsteinsdóttir frá velferðarsviði.

Fyrir hönd Alþýðusambands Íslands (ASÍ): Bjarni Þór Sigurðsson, Magnús M. Norðdahl og Sigurrós Kristínsdóttir.

Fyrir hönd Bandalags háskólamanna (BHM): Georg Brynjarsson og Sigríður Svavarsdóttir.

Fyrir hönd Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB): Garðar Hilmarsson og Kristín Á. Guðmundsdóttir.

Fyrir hönd Kennarasambands Íslands (KÍ): Rósa Ingvarsdóttir.

Hópnum er falið að skila niðurstöðum til borgarráðs 1. apríl næstkomandi.