Borgarverðir á nýjum bíl

Velferð Mannréttindi

""

Borgarverðir, teymi sem þjónustar utangarðsfólk, hafa nú eignast nýjan bíl. Í fyrra þegar verkefnið var á tilraunastigi keyrðu þau um á gömlum Ford  Econoline en nú hafa borgarverðirnir fengið sérútbúinn dökkbláan Volkswagen Caravelle til að mæta þörfum starfsins. Þetta er mikil breyting til batnaðar frá gamla bílnum og enn meiri frá bílaleigubílnum sem þau hafa unnið á undanfarið.

Í nýja bílnum eru leðurklæddir bekkir til að sitja á en einnig er færanlegt starfsmannasæti, sem auðveldar borgarverði að hlúa að sárum eða eiga persónuleg samskipti við farþega. Í bílnum er skápur með sjúkratösku, nálarskiptaþjónustu og öðru geymsluplássi. Undir sætisbekk er geymslurými sem m.a. er nýtt til að geyma box fyrir notaðar nálar en síðan er þeim komið til förgunar á réttum stað. Nálarstunguboxið er mikilvægt til að draga úr hættunni á því að notaðar nálar séu skildar eftir á víðavangi.

Í bílnum er nóg pláss svo gott er að vera á ferðinni, veita skjól eða skjóta fólki á milli staða sé þess óskað. Um 30-40 einstaklingar leita aðstoðar borgarvarða dag hvern. Starf borgarvarða er ekki bara í bílnum heldur starfa þeir einnig meðal utangarðsfólks, í Dagsetri, Gistiskýlinu og í smáhýsum utangarðsfólks á Granda.

Aðstoða utangarðsfólk

Borgarverðir eru færanlegt vettvangsteymi sérfræðinga sem þjónustar utangarðsfólk í Reykjavík. Þjónusta borgarvarða við þessa einstaklinga felst einkum í umönnun, forvörnum, akstri og leitarstarfi á vettvangi.  Þeim er ætlað að aðstoða fólk sem á í erfiðleikum vegna vímuefnafíknar og/eða geðsjúkdóma og sem stöðu sinnar vegna lendir í aðstæðum á almannafæri sem það ræður ekki við eða veldur öðrum ónæði. 

Öll aðstoð byggist á grundvelli mannréttinda og er mannréttindastefna Reykjavíkurborgar höfð að leiðarljósi í starfinu.

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar starfrækir verkefnið. Fyrsta árið var eitt stöðugildi lögreglumanns en að reynslutíma loknum kom nýr hópur  til starfa frá velferðarsviði og lögreglan dró sitt stöðugildi úr verkefninu. Stöðugildin eru alls þrjú og kostar velferðarsvið þau öll.

Helsta breytingin sem hefur orðið er að án lögreglu í teyminu hefur teymið lakari heimild til þess að grípa inn í aðstæður og fjarlægja fólk sem veldur ónæði á almannafæri. Í þess háttar tilvikum bjóða borgarverðir viðkomandi að fylgja sér í bróðerni. Ef það gengur ekki er leitað eftir aðstoð lögreglu. Þetta fyrirkomulag hefur gengið vel og í langflestum tilvikum án afskipta lögreglunnar.  Samstarfið við lögreglu felst  einkum í samráðsfundum og teymið hefur ávallt aðgang að varðstjóra á vakt í gegnum síma.

Borgarverðir starfa frá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða. Þeir starfa á almenningsstöðum innan borgamarka Reykjavíkur á virkum dögum frá kl. 10 til 18.