Borgarsýn komin út

Umhverfi Skipulagsmál

""

Ný Borgarsýn er komin út, hlaðin efni og upplýsingum um umhverfis- og skipulagsmál Reykjavíkurborgar.

Borgarsýn er komiin út í þriðja sinn á árinu en blaðið kom fyrst út haustið 2011. Um er að ræða  10. tbl af Borgarsýn frá upphafi  en blaðið kemur að jafnaði út 3-4 sinnum á ári. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar gefur Borgarsýn út og er tilgangurinn með útgáfunni fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi umhverfis - og skipulagsmála hverju sinni. Hægt er að nálgast rafræn eintök á heimasíðu borgarinnar.

Í leiðara blaðsins að þessu sinni er komið sterkt inn á upplýsingagjöf og samráð sem er stefnt að auka í öllum verkefnum sviðsins á komandi starfsári. Upplýsingagjöfina þarf að gera skýrari og skiljanlegri í sumum tilvikum en í öðrum þarf samráðið að hefjast fyrr. Ætlunin er einnig að auka fræðslu til borgarbúa um þau mikilvægu atriði sem þurfa að vera til staðar til þess að borgin geti talist umhverfisvæn og heilnæm. Útgáfa á Borgarsýn er liður í slíkri upplýsingagjöf en fyrirhugað er að bæta um betur, m.a. með því að efla beint samtal við borgarbúa. Sviðið hefur því skipulagt fundarröð með formanni umhverfis- og skipulagsráðs, Hjálmari Sveinssyni á Kjarvalsstöðum þar sem borgarbúum er boðið í óformlegt spjall með utanaðkomandi sérfræðingum í viðfangsefninu eða þeim sem hafa látið sig málið varða um það sem brennur á okkur hverju sinni.  Fyrsti fundurinn var í október og yfirskriftin var „Hver á borgina?“ Fundurinn var afar vel sóttur og tæpt var á mörgu og er hægt að lesa um fundinn hér í blaðinu. Lýðheilsa er nátengd skipulagi og umhverfismálum almennt og sannað er að gönguvænar borgir sem með skipulagi sínu hvetja til hreyfingar þykja hvað heilnæmastar. Því er einmitt áformað að á næsta opna fundi um skipulag og umhverfi borgarinnar verði um lýðheilsu og loftslagsmál 12. nóvember nk.



Umhverfis – og skipulagssvið Reykjavíkurborgar vonast til þess að Borgarsýn upplýsi borgarbúa um áherslur varðandi þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem koma öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum og er einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson, Elínborg Ragnarsdóttir, Gunnar Hersveinn og Halldóra Hrólfsdóttir.

10. tbl. af Borgarsýn.