Síðasti fundur borgarstjórnar Reykjavíkur fyrir meirihlutaskipti fór fram í gær. Fundinum lauk á kveðjuræðu Jóns Gnarr, fráfarandi borgarstjóra, þar sem hann þakkaði fyrir samstarfið. Auk borgarstjóra hætta fjórir borgarfulltrúar Besta flokksins, tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og einn borgarfulltrúi Samfylkingarinnar kvöddu á fundinum í gær.
Þeir sem sátu sinn síðasta borgarstjórnarfund í gær úr röðum Besta Flokksins eru auk borgarstjóra Einar Örn Benediktsson, Eva Einarsdóttir, Karl Sigurðsson og Páll Hjaltason. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks kvöddu einnig en Hildur mun þó halda starfi sínu áfram sem fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks á næsta kjörtímabili. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, rær einnig á önnur mið. Allir þökkuðu fyrir samstarfið og óskuðu hvort öðru velfarnaðar í starfi.
Borgarstjóri tók til máls í lok fundar og sagði meðal annars að hann væri maður að meiru eftir að hafa fengið að starfa með samstarfsfólki sínu að borgarmálunum. En hann sagðist ekki vera hættur enn.
"Þessi meirihluti er hér þar til 16. júní og þá er aftur fundur í borgarstjórn og ég er'ann ennþá. Það er enn verið að tagga mig á Facebook þegar fólk hefur eitthvað til að kvarta yfir. Starfi mínu verður ekki endanlega lokið fyrr en fólk hættir að tagga mig og sér ekki lengur tilgang í því að tagga mig út af gubbi á Snorrabraut t.d. skora á borgarstjóra að girða brækur í brók eða hvað sem fólk segir. Ég vil þakka fulltrúum þeirra stjórnmálaflokka sem ég hef verið að vinna með og um leið vil ég þakka fyrir hlý orð í minn garð. "
Á næsta borgarstjórnarfundi sem haldin verður þann 16. júní mun nýr borgarstjóri og meirihluti taka við völdum í borginni.