Borgarstjóri heimsótti Laugalækjarskóla á mannréttindadegi

Skóli og frístund

""

Jón Gnarr borgarstjóri heimsótti nemendur í Laugalækjarskóla í dag en þar var að frumkvæði nemenda haldinn mannréttindadagur. Nemendur fengu til sín góða gesti og fræddust m.a. um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og starf UNICEF. Borgarstjóra fagnaði þessu framtaki nemenda og sagði þeim frá því hvernig hann hefði lagt áherslu á mannréttindabaráttu í sínu starfi.   

Nemendur í Laugalækjarskóla fengu til sín gesti frá UNICEF og Amnesty International sem fræddu þá um mannréttindabaráttu um allan heim og svo unnu þeir hópaverkefni um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna  og mátu skólastarfið í ljósi sáttmálans. Þá ræddu þeir af hverju mannréttindabarátta á Íslandi er mikilvæg, s.s. barátta samkynhneigðra, mismunum kynja og kynþátta.   

Borgarstjóri fékk þann heiður að slíta dagskránni á mannréttindadegi með ávarpi sínu og sagði þá m.a. að allir þyrftu að hjálpast að til að tryggja að allar manneskjur fengju notið mannréttinda. Þar gæti máttur venjulegs fólks verið mikill, það eina sem þyrfti að gera væri að láta sig annað fólk varða. 

Það voru þær Steinunn Jónsdóttir og Þórhildur Þórsdóttir nemendur í 9-L sem áttu frumkvæði að þessari vel heppnuðu dagskrá á mannréttindadegi í Laugalækjarskóla.