Nýr borgarstjóri í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, gerði sér ferð í Breiðholt þriðjudaginn 18. júní – á fyrsta starfsdegi sínum í embætti, en hann tók við lyklavöldum í Ráðhúsinu af Jóni Gnarr mánudaginn 16. júní.
Dagur heimsótti meðal annars Þjónustumiðstöð Breiðholts og félagsstarfið í Gerðubergi þar sem hann heilsaði upp á þátttakendur í starfinu sem gerðu sér glaðan dag að venju. Þá fundaði borgarstjóri einnig með Óskari Dýrmundi Ólafssyni hverfisstjóra í Breiðholti.