Borgarstjóri fellir jólatré sem fært verður Þórshafnarbúum að gjöf

Umhverfi Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri felldi jólatré hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur í Heiðmörk í gær en það verður fært íbúum Þórshafnar í Færeyjum að gjöf fyrir þessi jól. 

Borgarstjóri kom í Heiðmörk við Elliðavatnsbæinn í gær þar sem Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, tók á móti honum ásamt fleiri starfsmönnum. Því næst fékk Dagur viðeigandi öryggisbúnað og kennslu í skógarhöggi. Að því loknu var keyrt upp í lundinn þar sem tréð stóð sem búið var að velja fyrirfram. Um var að ræða 12 metra hátt sitkagreni sem var gróðursett fyrir um hálfri öld. 

Eimskip mun svo flytja tréð til Færeyja og verður það sett upp á Tinghúsvöllurinn, torgi í miðborg Þórshafnar.

Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, mun færa Þórshafnarbúum tréð síðar í mánuðinum en þetta er í annað sinn sem Reykjavíkurborg, Skógræktarfélagið og Eimskip senda Færeyingum jólatré.