Sá fáheyrði atburður átti sér stað 4. mars að stelpurnar á skrifstofu reksturs og umhirðu hjá umhverfis- og skipulagssviði mættu með yfirvaraskegg, hjálma og í öryggisvestum og skráðu sig í mottumars 2014. Þær stofnuðu liðið Stelpurnar á Borginni og birtu myndir af sér með sönnunargagnið yfir vörum.
Tilgangurinn er þríþættur, í fyrsta lagi að safna áheitum sem liðið Stelpurnar á Borginni, í öðru lagi að skora á karla sem starfa hjá skrifstofu reksturs og umhirðu til að taka þátt annað hvort með því að skrá sig eða heita á þær og í þriðja lagi til að vekja athygli á framtaki Krabbameinsfélagsins því ár hvert greinast rúmlega sjö hundruð íslenskir karlar með krabbamein. Algengust eru krabbamein í blöðruhálskirtli, lungum og ristli.
Stelpurnar á Borginni starfa daglega við það að fegra, hreinsa og betrumbæta umhverfi borgarbúa með ýmsum hætti. Meginverkefnið er grassláttur, vetrarþjónusta, hreinsun á borgarlandinu, umferðarljós, umferðarskilti, gatnalýsing, umhirða opinna svæða, rekstur hverfastöðva og verkbækistöðva garðyrkju, ræktunarstöðvar, meindýravarnir og búfjáreftirlit. Jafnframt að gefa út leyfi til framkvæmda, götu- og torgsölu og sinna bílhræum. 20 konur eru í liðinu Stelpurnar á Borginni og rík ástæða til að styðja framtak þeirra. Yfir 100 karlar vinna þessi mikilvægu störf hjá skrifstofunni og tæplega 30 konur.