Borgarstarfsmenn fundu eldavél og reiðhjól

Umhverfi Framkvæmdir

""

Yfir 200 starfsmenn frá öllum sviðum borgarinnar lögðust á eitt um að hreinsa borgarlandið af rusli í dag. Söfnuðust um 200 svartir ruslapokar en tínt var vítt og breitt um borgina. Jón Gnarr borgarstjóri var sjálfur við hreinsun í Breiðholti.

Yfir 200 starfsmenn frá hinum ýmsu skrifstofum Reykjavíkurborgar,  tíndu upp rusl vítt og breitt um borgina í dag í tilefni af evrópska hreinsunardeginum (Clean up Europe Day). 

Jón Gnarr borgarstjóri hvatti borgarstarfsmenn til að taka þátt í átakinu og fór hann sjálfur ásamt hópi starfsfólks af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara að hreinsa upp rusl í Breiðholti.

Starfsfólk frá ýmsum sviðum var skipt niður í hópa sem fóru um þrettán svæði í borginni. Fólk lét ekki sudda og rigningu á sig fá heldur klæddu sig eftir veðri og hirtu upp rusl sem víða má sjá á opnum svæðum og við akbrautir í borginni.  

Hóparnir voru að störfum í tvo klukkutíma og þegar upp var staðið var búið að safna í 200 svarta ruslapoka sem er gott dagsverk. Mikið var um plastumbúðir, drykkjarmál, sígarettupakka og sígarettustubba, alls kyns umbúðir og pappírsrusl.  Meðal skringilegra hluta sem voru hreinsaðir burt úr borgarlandinu voru eldavél og reiðhjól.

Um helgina 10.-11. maí hefst almennt hreinsunarátak í borginni. Eru íbúar og fyrirtæki hvattir til að taka til hendinni og hreinsa í nærumhverfi  sínu til að borgin verði skínandi fín í sumar. Olís styrkir átakið með því að gefa svarta plastpoka undir rusl en hreinsunardeild borgarinnar mun safna pokunum saman eftir helgi. Ekki er tekið við garðaúrgangi.