Borgarráð - neyðaraðstoð vegna hörmunganna á Gaza svæðinu

Mannlíf Mannréttindi

""

Borgarráð hefur samþykkt einróma að veita fé í neyðaraðstoð vegna yfirstandandi hörmunga á Gaza svæðinu. 

Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í morgun að veita sem svarar 100 kr. á hvert barn í Reykjavík til hjálparstarfs vegna yfirstandandi hörmunga á Gaza svæðinu. Upphæðin nemur um 2,9 milljónum króna.

Barnahjálp SÞ verður falin ráðstöfun fjárins sem neyðaraðstoð.