Borgarráð lýsir stuðningi við stjórn Slökkviliðsins

Stjórnsýsla Fjármál

""

Borgarráð fjallaði um bréf heilbrigðisráðherra til stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðins varðandi verklok þjónustu vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu á fundi sínum í gær. Borgarráð samþykkti með fimm atkvæðum að lýsa yfir fullum stuðningi við stjórn Slökkviliðsins.

Bréf heilbrigðisráðherra var afhent stjórn SHS af fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur, 24. janúar sl. þar sem átti að ræða verklok þjónustu vegna sjúkraflutninga. Í bréfinu óskar heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson m.a. eftir því að taka upp að nýju samningaviðræður um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélögin sem standa að SHS hafa öll með tölu stutt samkomulagsgrundvöll sem undirritaður var 1. febrúar á síðasta ári af sáttanefnd sem skipuð var Gunnari Einarssyni, formanni stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og bæjarstjóra í Garðabæ, Birgi Birni Sigurjónssyni, fjármálastjóra Reykjavíkurborgar, og tveimur fulltrúum velferðarráðuneytisins, þeim Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra bráðadeildar Landspítalans og Ingvari Sverrissyni ráðgjafa, sem þáverandi velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson skipaði.

Samkomulagsgrundvöllurinn byggir á óháðri skýrslu KPMG sem komst að þeirri niðurstöðu að ríkinu bæri að greiða 856 milljónir á ári sem sanngjarna greiðslu fyrir sjúkraflutningana en ríkinu ber samkvæmt lögum að standa straum af sjúkraflutningum í landinu. KPMG komst einnig að þeirri niðurstöðu að raunkostnaður við sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu sé yfir 1.100 milljónir króna á ári.

Samkomulagsgrundvöllurinn gengur út á það að ríkið greiði 616 milljónir fyrir sjúkraflutninga ársins 2012, 708 milljónir króna á ári 2013 - 2015 og 830 milljónir á ári vegna áranna 2016 - 2018. Hafa sveitarfélögin sagt að þau séu ekki tilbúin til að ganga lengra í að niðurgreiða þjónustuna fyrir ríkið en samningar hafa verið lausir frá 2011.

Bókunin sem borgarráð samþykkti var svohljóðandi.

„Borgarráð lýsir fullum stuðningi við stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og staðfestir umboð hennar í þeirri erfiðu vinnu sem farið hefur fram óslitið frá því í október 2011 vegna endurnýjunar á samningi á sjúkraflutningum SHS. Samlegðaráhrif sjúkraflutninga og slökkviliðs eru ótvíræð auk þess sem fyrirsjáanleg fækkun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í SHS vegna aðskilnaðar sjúkraflutninga frá slökkviliði mun skerða öryggi á höfuðborgarsvæðinu. Skorað er á ríkisstjórn Íslands að standa við innihald þess samkomulagsgrundvallar sem gerður var milli aðila í febrúar 2013. Samningur á grundvelli samkomulagsins liggur fyrir en hefur hvorki verið undirritaður né hefur ríkið greitt fyrir þjónustuna í samræmi við kostnaðarmat sem honum lá til grundvallar og unnið var af óháðum aðila. Á meðan svo er niðurgreiða sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjúkraflutninga en taka skal fram að sjúkraflutningar eru á verksviði ríkisins samkvæmt lögum. Borgarráð lýsir vonbrigðum sínum vegna skilningsleysis heilbrigðisráðuneytisins á því að ríkið þurfi að greiða þann kostnað sem ríkinu ber og hefur nú leitt til þess að stjórn SHS hefur þurft að grípa til þess neyðarúrræðis að biðja um verklok vegna þjónustunnar. Það neyðarúrræði byggist ekki á einlægum vilja til þess að slíta samstarfi ríkis og sveitarfélaga og skilja að sjúkraflutninga og slökkvistarf, heldur á algjöru vonleysi gagnvart stöðu mála.“



Bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins var að mestu leyti samhljóma bókuninni hér að ofan sem borgarráð samþykkti en þeir lýstu stuðningi við stjórn SHS og staðfest umboð hennar í „þeirri erfiðu vinnu sem farið hefur fram vegna endurnýjunar umrædds samnings.“ Að auki lögðu þeir til að fallist yrði á ósk heilbrigðisráðherra um að hefja að nýju samningaviðræður um sjúkraflutninga en að aðeins yrði gefinn mánuður til að ná samningi á grunni samkomulagsgrundvallarins.