Blómstrandi tré og runnar

Umhverfi

""

Blómstrandi tré og runnar er yfirskrift leiðsagnar um Grasagarðinn á Íslenska safnadeginum sunnudaginn 13. júlí kl. 11.

Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni og í garðinum eru varðveittar um 5600 plöntur í níu safndeildum.

Í tilefni af íslenska safnadeginum sunnudaginn 13. júlí býður Grasagarðurinn upp á leiðsögn um trjásafnið kl. 11 og verður athyglinni beint að blómstrandi trjám og runnum.

Mæting er við aðalinngang garðsins kl. 11. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Leiðsögn er í höndum Jónu Valdísar Sveinsdóttur yfirgarðyrkjufræðings.