Biophilia fær norræna vængi

Skóli og frístund

""

Biophiliu-tónvísindaverkefnið sem hleypt var af stokkunum í Reykjavík fyrir nokkrum árum er nú komið inn í norrænt samstarf. 

Norræna Biophiliu kennsluverkefninu var ýtt úr vör 13. nóvember með vinnusmiðjum í Hörpu. Það er eitt af formennskuverkefnum Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014 en var í upphafi þróað í Reykjavík í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur tónlistarkonu og Háskóla Íslands. Meðal þátttakenda eru Björk og nafntogaðir norrænir lista- og vísindamenn. 

Samstarfsaðilar frá norrænu ríkjununum fimm og Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi munu á fundum sínum í Reykjavík ræða aðferðarfræðina og ýmsar kennsluaðferðir og leggja grunn að markvissu samstarfi um þetta framsækna verkefni. Hvert landanna hefur skipað stýrihóp og tilgreint svæði þar sem Biophilia verður kennd á næsta ári. Verkefnið er til þriggja ára; árið 2014 fer í undirbúning, árið 2015 í framkvæmd á Norðurlöndum og árið 2016 í mat og eftirfylgni.



Þátttakendur í verkefninu eru 

Danmörk: Álaborg

Finnland: Grankulla/Kaunainen

Noregur: Strand sveitarfélag

Svíþjóð: Sundsvall

Álandseyjar: Maríuhöfn

Færeyjar: Þórshöfn

Grænland: Sisimiut

Í hverjum stýrihóp eru fulltrúar skólayfirvalda, menningarstofnana og háskóla- eða rannsóknarstofnana.

Biophilia er viðamikið kennsluverkefni með þátttöku fræðimanna, vísindamanna, listamanna, kennara og nemenda á öllum skólastigum. Það byggist á því að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman á nýstárlegan hátt.

Markmiðið með Biophilia kennsluverkefninu í norræna samstarfinu er að:

•         efla nýsköpun í skólastarfi með því að þróa kennsluaðferðir sem sameina þekkingu, sköpun og tækni;

•         umbreyta hefðbundnum kennsluháttum með þverfaglegri nálgun, þvert á aldurshópa, kennslugreinar og fagsvið;

•         þróa staðbundin samstarfsnet í þátttökulöndunum, sem tengjast á norrænum samstarfsvettvangi og þar sem unnið verður að því að efla norrænt notagildi;

•         þróa starfsvettvang á vefnum fyrir norrænt samstarf um verkefnið fyrir ólíka faghópa. 



Biophilia kennsluverkefnið byggist á þeirri grunnhugmynd að best sé að börn hefji listiðkun sína með sköpun þar sem tónlist, vísindi og tækni eru samþætt á nýstárlegan hátt. Með Biophiliu aðferðinni er leitast við að brjóta upp hið hefðbundna kennsluform. Kennarar, fræði- og vísindamenn, listamenn, hugvitsmenn og aðrir þátttakendur vinna þverfaglega, á milli skólastiga, námsgreina, vísinda og lista þar sem sköpun er notuð sem kennsluaðferð og til að örva umhverfisvitund.