Bíophília er komin til Svíþjóðar

Skóli og frístund Menning og listir

""

Skemmtilegu tónvísindasmiðjurnar Biophilía sem listakonan Björk Guðmundsdóttir kom á fót í Reykjavík eru nú komnar til Svíþjóðar. 

Biophiliu-tónvísindasmiðjurnar eru þverfaglegt samstarfsverkefni Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar og fór af stað haustið 2010. Það hefur þegar fengið viðurkenningu sem besta vísindamiðlunarverkefni ársins hjá evrópskum háskólum (EUPRIO) og verið kynnt í New York og á Norðurlöndum. Þá er Biophilia eitt af formennskuverkefnum Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni sem þeir veita forystu á árinu 2014. Og nú er verið að kynna verkefnið á Nobel-safninu í Svíþjóð  og býðst skólum um alla Svíþjóð að sækja um þátttöku í þessu skemmtilega verkefni.  

Tónvísindasmiðjurnar urðu til í tengslum við verk Bjarkar Biophilia og voru unnar í samstarfi hennar, fræðimanna við HÍ og kennara hjá Reykjavíkurborg. Þær eru hugsaðar fyrir grunnskólanema á aldrinum 10-12 ára og hefur verið útbúin sérstök verkfærakista með kennsluleiðbeiningum til að setja upp skemmtilega og skapandi tónvísindasmiðju. Þar fá börn tækifæri til að læra á nýstárlegan hátt um tónlist og vísindi og skapa sína eigin tónlist.

Sérfræðingar úr Háskóla Íslands og frá Reykjavíkurborg, svo og teymi Bjarkar þróuðu kennsluefnið í smiðjunum en þar fræðast nemendur bæði um tónfræði og ýmis undur náttúrunnar, svo sem andefni, kristalla, eldingar, jarðrek, vírusa og erfðaefni. Í undraheimi Biophilia-verkefnisins læra nemendur einnig á sérstök smáforrit (öpp) í iPad-spjaldtölvum og skapa sínar eigin útsetningar og tónsmíðar og hjálpa jafnframt til við að móta námskrá framtíðarinnar þar sem tónlistarnám er samþætt vísindum, tölvutækni og sköpun.