The Big Borealis Band fær 2,1 milljón króna úr Vestnorræna höfuðborgasjóðnum

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Stjórn Vestnorræna höfuðborgasjóðsins hélt ársfund sinn í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum þann 23. apríl sl. Á fundinum var ákveðið að úthluta 6,3 milljónum króna (300.000 DKK) í styrki til 11 verkefna á sviðum menningar, fræðslu og íþrótta í Reykjavík, Nuuk og Þórshöfn. Alls bárust 34 umsóknir um styrk.

Sjóðurinn hefur það hlutverk að efla samstarf og skilning milli stjórnmálamanna og íbúa í Reykjavík, Þórshöfn og Nuuk (Kommuneqarfik Sermersooq) með því að styrkja verkefni á þessum sviðum. Eignir sjóðsins eru árleg framlög frá Reykjavíkurborg, Þórshöfn og Nuuk sem hver um sig veita um 2,1 milljón króna (100.000 DKK) í sjóðinn. Árlegt heildarframlag til sjóðsins svarar því samtals til um 6,3 milljóna króna (300.000 DKK).

Vestnorræn ungmennahljómsveit heldur í tónleikaferðalag

Höfuðborgirnar veita hver um sig styrki til verkefna sem borist hafa þeim innan tilskilins frests en hann rann út þann 26. mars sl. Af hálfu Reykjavíkurborgar var í ár ákveðið að styrkja verkefnið The Big Borealis Band frá Reykjavík um 2,1 milljón króna (100.000 DKK). Verkefnið snýst um að sameina í eina hljómsveit níu unga Vestnorræna tónlistarmenn, þrjá frá hverri borg, undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar. Hljómsveitin áætlar að halda fjóra tónleika í Þórshöfn, Reykjavík, Kaupmannahöfn og Nuuk. Verndari verkefnisins er frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands.

Í stjórn sjóðsins sitja níu fulltrúar, borgarstjóri og tveir borgarfulltrúar/sveitarstjórnarfulltrúar frá hverri höfuðborg. Fulltrúar Þórshafnar eru þau Heðin Mortensen, borgarstjóri, Jógvan Arge aðstoðarborgarstjóri og Elin Lindenskov annar aðstoðarborgarstjóri. Fulltrúar Reykjavíkurborgar eru þau Jón Gnarr borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs og Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi. Fulltrúar Nuuk (Kommuneqarfik Sermersooq) eru þau Asii Chemnitz Narup borgarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúarnir Per Berthelsen og Malene Lynge.

Stjórn sjóðsins mun næst funda í Reykjavík í maí 2015 og verður frestur til styrkumsókna auglýstur þegar nær dregur.

Samstarfssamningur Reykjavíkur og Þórshafnar um „Æsku og skógrækt“

Samhliða fundi í stjórn Vestnorræna höfuðborgasjóðsins undirrituðu borgarstjórar og borgarritarar Reykjavíkur og Þórshafnar samstarfssamning um ungmennasamstarf og skógrækt. Meginmarkmið verkefnisins, sem nefnt er „Æska og skógrækt“, er að veita 5 til 6 ungmennum á aldrinum 15 til 17 ára frá Þórshöfn og Reykjavík innsýn og skilning á mikilvægi skóga, bæði innanlands og á heimsvísu. Verkefninu er ætlað að skapa gott samstarf milli ungmenna í borgunum tveimur og byggir samstarfið á því að þau vinni saman að því að planta trjám og fái vitneskju um eigið umhverfi, menningu og sögu. Gert er ráð fyrir gagnkvæmum heimsóknum þriðja hvert ár og að fyrsta heimsóknin verði í september 2015.