Betri Reykjavík
Betri Reykjavík er samráðsvettvangur á netinu þar sem íbúum borgarinnar gefst tækifæri til að setja fram hugmyndir sínar um málefni sem varða þjónustu og rekstur Reykjavíkurborgar. Vettvangurinn er opinn öllum til skoðunar og til þátttöku gegn skráningu og samþykki notendaskilmála.
Um leið og notandi setur fram hugmynd á Betri Reykjavík, er litið á hana sem sameign borgarbúa, enda getur upphafleg hugmynd tekið breytingum í því samráðsferli sem þessi vettvangur býður upp á. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að nota þær hugmyndir sem fram koma á þeim samráðsvettvangi sem Betri Reykjavík er.
Hugmyndasöfnun í þínu hverfi fer fram 8. október til 7. nóvember og bindandi rafræn kosning verður snemma á næsta ári.
300 milljónir verður úthlutað fyrir þín verkefni. Hugmyndir verða framkvæmdar af Reykjavíkurborg næsta sumar.
Þú getur haft áhrif, komdu með hugmynd!
Sjá nánar á Betri Reykjavík.