Betra leiksvæði í Hljómskálagarði

Betri hverfi Umhverfi

""

Leiksvæði yngri barna í Hljómskálagarði gengur nú í endurnýjun lífdaga með nýjum leiktækjum og betri frágangi á fallundirlagi.  Verkefnið var valið í kosningunni Betri hverfi í fyrra. 

Leiksvæðið er staðsett við samverusvæði í garðinum, en það hefur verið vinsælt meðal hópa og fjölskyldufólks.  Ný tvöföld rennibraut, gormadýr, hringekja, jafnvægisstöng og veltipallur hafa verið sett upp á leiksvæðinu. Tvö eldri og lúin leiktæki voru fjarlægð, en tvö voru látin standa áfram.  

Undir nýju gervigrasi eru mjúkar mottur sem fallundirlag og kemur það í stað gömlu öryggismalarinnar. Gras og kantsteinn sem afmarka leiksvæðið verða lagfærð.

Margrét Sigurðardóttir, landslagsarkitekt og verkefnistjóri, segir að umgjörð og frágangur miði að því að gera svæðið aðgengilegt og öruggt í anda leiksvæðastefnu, með fjölbreyttu úrvali leiktækja og þarfir yngri barna að leiðarljósi.

Landmótun ehf. sá um hönnun svæðisins. Leiktækin koma frá Barnasmiðjunni, verktaki er Metatron ehf. og  verkeftirlit annaðist Guðmundur Hlír Sveinsson hjá Verkís. Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar er Margrét Sigurðardóttir landslagsarkitekt Fíla.