Barnafátækt er yfirskrift morgunverðarfundar Náum áttum hópsins miðvikudaginn 14. maí, sem jafnframt er síðasti morgunverðarfundur vetrarins. Eins og þema fundarins ber með sér munu fyrirlesarar fjalla um aðstæður og fátækt hjá börnum.
Fyrirlesarar verða;
- Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheill fjallar um fátækt barna - Brot á mannréttindum barna.
- Elísabet Karlsdóttir, félagsráðgjafi, MA framkvæmdastjóri RBF flytur erindi um Aðstæður reykvískra barnafjölskyldna.
- Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstofnun kirkjunnar spyr Hver er svo raunveruleikinn?
Að venju eru opnar umræður á eftir erindum en það er Steinunn Bergmann sem er fundarstjóri að þessu sinni.
Morgunverðarfundur Náum áttum er 14. maí að Grand hótel klukkan 08.15 - 10.00. Þátttökugjald er 2000 krónur en innifalið í því er morgunverður. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Skráning og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.naumattum.is.