Austurbæjarskóli vann BEST stærðfræðikeppnina en keppnin var á milli 9. bekkja af öllu landinu.
Í ár voru það nemendur í 9.SJ í Austurbæjarskóla sem báru sigur úr býtum í BEST stærðfræðikeppninni en keppnin var haldin í Háskóla Íslands 19. og 20. maí sl. Keppnin er samnorræn og því munu fjórir fulltrúar úr bekknum halda til Finnlands í júní nk. og keppa fyrir hönd Íslands við aðra bekki frá Norðurlöndunum.
BEST stærðfræðikeppnin hefur farið fram hér á Íslandi síðan 2001 en ákveðið þema er fyrir bekkjarverkefnið hverju sinni. Í ár var það stærðfræði og lýðfræði. Austurbæjarskólinn hefur a.m.k. 6 sinnum komist í undanúrslit. Sigrún Lilja Jónasdóttir umsjónarkennari er þjálfari hópsins.