Frestur til að sækja um styrk til Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 er til miðnættis þriðjudaginn 15. apríl. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni. Einstaklingar, hópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um. Hámaksupphæð hvers styrks er 700.000 krónur.
Tilgangur Hverfissjóðs Reykjavíkur er að styðja við verkefni sem stuðla að eftirtöldum þáttum í hverfum borgarinnar: • Bættu mannlífi og eflingu félagsauðs • Fegurri ásýnd borgarhverfa • Auknu öryggi í hverfum borgarinnar • Samstarfi íbúa, félagasamtaka eða fyrirtækja við borgarstofnanir. Sótt er um á mínum síðum á Rafrænni Reykjavík. Stjórn sjóðsins fer yfir allar umsóknir og tekur ákvörðun um styrkveitingar í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins og styrkjareglur Reykjavíkurborgar.