Auglýst eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna

Skóli og frístund

""

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfs. Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, kennarar, ömmur og afar, borgarstarfsmenn, stofnanir og samtök. 

Skilafrestur fyrir tilnefningar rennur út 28. mars, en verðlaunin sjálf verða afhent við hátíðlega athöfn í maí.  Níu verkefni sem þykja til eftirbreytni og öðrum hvatning til góðra verka verða verðlaunuð. Hvatningarverðlaunin eru í formi viðurkenningarskjals og verðlaunagrips sem starfsstaðurinn fær til eignar.

  • Viltu vekja athygli á gróskumiklu leikskóla-, grunnskóla eða frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar?
  • Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum eða annarri nýbreytni í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar?
  • Viltu veita starfsfólki skóla- og frístundastarfs í Reykjavík viðurkenningu og hvatningu?

Hér er tilnefningarblað. 

Sjá auglýsingu um hvatningarverðlaunin.