Atvinnuþróun og uppbygging í Reykjavík

Umhverfi Framkvæmdir

""

Reykjavíkurborg boðar til opins fundar um stöðu atvinnulífs í borginni miðvikudaginn 12. mars kl. 9 – 10:30 í Ráðhúsi Reykjavíkur.  

 

Fundurinn er  framhald af fjölsóttum fundi í október um uppbyggingu í Reykjavík. Áhugasamir þátttakendur í uppbyggingu í Reykjavík hafa kallað eftir framhaldi af því samtali og nú er ætlunin sú að fara yfir breytingar frá fyrri spá og setja fram áætlun borgarinnar um uppbyggingu komandi missera.

Kynnt verður í máli og myndum staða ýmissa verkefna er tengjast atvinnuþróun, ferðamennsku og mannvirkjagerð í Reykjavík, segir í fundarboði. „Eftir fimm ára lægð í uppbyggingu í Reykjavík er ljóst að komandi misseri munu einkennast af auknum framkvæmdum, einkum í ferðaþjónustu og byggingu íbúðarhúsnæðis“.



Boðið verður upp á kaffiveitingar frá kl. 8:30.

Dagskrá:

  • Ellý Katrín, borgarritari, fundarstjóri dagsins opnar fundinn
  • Jón Gnarr, býður fundargesti velkomna
  • Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar og ferðamálasviðs,  ferðaþjónusta í Reykjavík
  • Óli Örn Eiríksson, deildarstjóri atvinnuþróunar,  Atvinnuþróun í Reykjavíkurborg
  • Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs,  staða framkvæmda í borginni og spá borgarinnar um uppbyggingu komandi missera.
  • Ellý Katrín, Samantekt.