Velferðarráð Reykjavíkurborgar hvetur Kennarasamband Íslands til þess að veita undanþágur í verkfalli vegna fatlaðra framhaldsskólanema.
Alvarlegt ástand hefur skapast á heimilum fatlaðra framhaldsskólanema vegna verkfalls framhaldsskólakennara. Starfsfólk, annað en kennarar í skólunum, getur ekki sinnt þessum nemendum þrátt fyrir að vera á launum og í raun ekki í verkfalli. Er það vegna þess að þeir starfa undir verkstjórn framhaldskennara.
Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á fundi sínum í dag að hvetja verkfallsstjórn Kennarasambands Íslands til að veita undanþágur, berist beiðni frá nemendum og eða forráðamönnum þeirra, þannig að þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar geti unnið undir verkstjórn skólastjórnenda.
Með því raskast sem minnst daglegt líf fatlaðra framhaldsskólanema án þess þó að gengið verði í störf framhaldsskólakennara.
Ef ekki verður orðið við undanþágum þarf Reykjavíkurborg að skoða möguleika á að opna fyrir lengda viðveru, skammtímavistun eða aðra stuðningsþjónustu á skólatíma.