Áskorun borgarstjórnar til heilbrigðisráðherra vegna hjúkrunarrýma

Stjórnsýsla Velferð

""

Borgarstjórn samþykkti einróma á fundi sínum í dag að skora á heilbrigðisráðherra að standa án tafar við viljayfirlýsingu um byggingu hjúkrunarheimilis við Sléttuveg með 88 hjúkrunarrýmum.

Allt frá árinu 2008 hefur velferðarráðuneytið gert ráð fyrir hjúkrunarheimili á Sléttuvegi. Um svipað leyti var það staðfest í skipulagi borgarinnar. Í ljósi hlutfallslegrar fjölgunar aldraðra á komandi árum mun þörf fyrir hjúkrunarrými í Reykjavík aukast. Fyrir liggur undirritaður þjónustusamningur milli Reykjavíkurborgar og Sjómannadagsráðs frá 2011 um rekstur þjónustukjarna fyrir eldri borgara við Sléttuveg með þjónustumiðstöð og u.þ.b. 100 þjónustu- og öryggisíbúðum sem tengdar verða hjúkrunarheimlinu. Bygging hjúkrunarrýma er forsenda fyrir því að fyrirhuguð uppbygging á þjónustu fyrir aldraða muni nýtast til fulls. Í fyrrgreindri viljayfirlýsingu er af hálfu velferðarráðuneytis lýst yfir vilja til að reisa 88 rýma hjúkrunarheimili við Sléttuveg í samvinnu við Reykjavíkurborg á árunum 2014 - 2016. Jafnframt að Reykjavíkurborg, velferðarráðuneytið og Sjómannadagsráð/Hrafnista geri með sér sérstakan samstarfssamning um starfsemi hjúkrunarheimilisins áður en framkvæmdir hefjast.

Biðlisti eftir hjúkrunarrýmum er hlutfallslega lengstur í Reykjavík og fjölgun aldraðra hröðust. Rýmin sem viljayfirlýsingin tekur til við Sléttuveg eru aðeins brot af áætlaðri þörf á næstu árum.

Hrafnista hefur ekki getað hafið byggingu þjónustumiðstöðvar fyrr en fyrir liggur vilji ráðuneytisins til að standa við sínar eigin áætlanir og viljayfirlýsingar. Ástæðan er sú að hönnun þjónustuíbúða og þjónustumiðstöðvar Hrafnistu er tengd uppbyggingu hjúkrunarheimilis.

Viljayfirlýsing um uppbyggingu hjúkrunarrýma og þjónustu við aldraða í Reykjavík.