Hinn kunni ítalski píanóleikari, Domenico Codispoti leikur á árlegum Mozart tónleikum á Kjarvalsstöðum í tilefni af fæðingardegi tónskáldsins. Tónleikarnir fara fram á mánudaginn 27. janúar og hefjast klukkan 18. Ókeypis aðgangur.
Afmælistónleikar Mozarts hafa verið haldnir á Kjarvalsstöðum um árabil á fæðingardegi tónskáldsins þann 27. janúar. Að þessu sinni kemur hinn kunni ítalski píanóleikari Domenico Codispoti fram á afmælistónleikunum.
Hann flytur tvo píanókonserta Mozarts, KV. 414 og KV. 415, ásamt strengjaleikurunum Laufeyju Sigurðardóttur, Sigurlaugu Eðvaldsdóttur, Þórunni Ósk Marinósdóttur og Bryndísi Höllu Gylfadóttur. Þá gerir Arndís Björk Ásgeirsdóttir tónlistinni skil í stuttu spjalli við tónleikagesti.
Þetta er í sjöunda sinn sem Codispoti kemur fram hér á landi en hann lék hér síðast á tónleikum í Hörpu í mars 2013 og hlaut mikið lof fyrir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 18.00 og aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir eru í boði Reykjavíkurborgar