Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO býður til samkomu í Tjarnarbíó annan miðvikudag hvers mánaðar. Samkomurnar, sem hafa hlotið nafnið ANDRÝMI, verða vettvangur þar sem orðlistarfólk kemur saman og gefur sér tóm til að ræða orðlist, bókmenntir og bókmenntalífið í borginni. Samkomurnar verða haldnar á barnum í Tjarnarbíói og sú fyrsta verður nú á miðvikudaginn, þann 12. mars kl. 20:00 - 22:00.
Á fyrstu samkomunni MIÐVIKUDAGINN 12. MARS verður boðið upp á lauflétta dagskrá í byrjun og tilboð á barnum. Þorsteinn Guðmundsson, grínisti og rithöfundur, flytur stutta hugvekju og Margrét Bjarnadóttir, sem gaf út sína fyrstu bók Líf mitt, til dæmis hjá grasrótarforlaginu Tunglinu í fyrra, les upp. Alla jafna verður þó ekki um skipulagða dagskrá að ræða því Andrýmið er fyrst og fremst hugsað sem staður til að spjalla og viðra hugmyndir.
Andrýmið er ætlað öllum þeim sem hafa faglega tengingu við orðlist og bókmenntir, hvort sem það eru rithöfundar, útgefendur, bóksalar, viðburðahaldarar, bókasafnafólk, fjölmiðlafólk eða aðrir sem starfa á þessum vettvangi. Fyrirmyndin er meðal annars sótt til Bókmenntaborgarinnar Edinborgar, en þar hefur „Literary Salon“ verið haldið úti um árabil, verið vel sótt og reynst lyftistöng fyrir bókmenntalífið í borginni.