Ánægjuleg endurmenntun á öskudegi

Skóli og frístund

""

Létt var yfir öskudagsráðstefnu reykvískra grunnskólakennara í dag, en þar var lögð áhersla á jákvæðni og sköpun og vellíðan nemenda sem forsenda fyrir árangri þeirra í námi. Ráðstefnan er haldin af skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar í samstarfi við Kennarafélag Reykjavíkur og Félag skólastjórnenda í Reykjavík.

Grunnskólakennarar fjölmenntu á öskudagsráðstefnunna sem er mikilvægur þáttur í símenntun og faglegri eflingu. Ráðstefnan var nú haldin í 12. sinn og að þessu sinni undir yfirskriftinni Já, kennari.

Linda Hreiðarsdóttir, kennari í Laugalækjarskóla, setti ráðstefnuna og sagði m.a. að mikilvægt væri að halda í jákvæðni í kennarastarfinu, vera hvetjandi og nemendum sterk fyrirmynd. Aðalfyrirlesarinn, danski fræðimaðurinn Hans Henrik Knoop fjallaði um hvernig nám og skapandi hugsun þurfa að haldast í hendur og nauðsyn þess að gleði og flæði séu í fyrirrrúmi í kennslustofunni. "Það sem gefur náminu gildi er að öðlast reynslu, skilja eitthvað nýtt, upplifa flæði og gleði, stjórn  á aðstæðum og ekki síst að upplifa sjálfsprottna löngun, vilja og sjálfsaga til að afla sér aukinnar þekkingar og reynslu,"

Að loknum innleiðandi erindum var boðið upp á fimm málstofur, þar af eina utandyra, þar sem fjallað var um leiðir til að bæta lesfimi, starfendarannsóknir, kennarann sem leiðtoga og snjalla útikennlu. Fjölmennasta málstofan var um kennara og jákvæða sálfræði þar sem Dóra Guðrún Guðmundsdóttir og Ásdís Olsen gáfu ýmis hagnýt ráð til að auka hamingju, vellíðan og sátt í skólastarfinu.

Óhætt er að segja að þessi fjölmennasti fagvettvangur kennara í landinu hafi tekist vel og gefið mörgum andagift og ánægjulega samveru á öskudegi. 

Sjá meira um ráðstefnuna.