Leikskólinn Álftaborg er í skemmtilegu samstarfi við leikskóla í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi þar sem unnið er með þjóðsögur.
Verkefnið er styrkt af Norplus og er aðalmarkmiðið að gera bókinni hærra undir höfði. Unnið er með þjóðsögur frá hverju landi og fléttað inn í vinnuna lífsleikni, tækni, vísindum og stærðfræði. Börnin í Álftaborg hafa meðal unnið með sænska þjóðsögu; Strákinn sem fór í kappát við risann og ætla næst að kasta sér yfir norska sögu. Börnin hafa talað mikið um skóginn sem leikur stórt hlutverk í norrænum þjóðsögum og eru meðvituð um að ekki megi eyðileggja hann. Þá hafa þau rætt hvernig spara megi pappír og endurvinna alls konar hluti, t.d. er hægt að búa til helli fyrir risa úr mjólkurfernum.