Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu borgarstjóra að fela forsætisnefnd undirbúning dagskrár til heiðurs 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi en aldarafmælið verður 19. júní 2015.
19. júní árið 2015 verða 100 ár liðin frá því að Danakonungur undirritaði lög er veittu konum sem orðnar voru 40 ára og eldri rétt til að kjósa og bjóða sig fram til Alþingis. Þar með voru langþráð réttindi kvenna í höfn eftir áratuga langa baráttu íslenskra kvennahreyfinga og stuðningsmanna þeirra.
Til að minnast þessa merka atburðar í baráttusögu kvenna ákváðu konur í Reykjavík á fjölmennum fundi þann 19. júní 1915 að hefja fjársöfnun til að greiða fyrir stofnun landspítala í Reykjavík og áttu þau framlög drjúgan þátt í að koma upp aðalbyggingu Landspítalans.