Í dag gerðist sá merkisatburður að 37 stálpaðir æðarungar voru fluttir úr Húsdýragarðinum, þar sem þeir hafa verið í góðu yfirlæti, síðan þeir klöktust út fyrir um mánuði síðan, niður í Vatnsmýri þar sem þeim var sleppt.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1957 að æðarungar hafa verið ræktaðir með það að markmiði að flytja þá á Tjörnina. Þetta verkefni er mikilvægur liður í að bæta ástand varpstofna fugla við Tjörnina og í friðlandinu í Vatnsmýri. Á síðustu árum hefur hallað nokkuð undan fæti hjá nokkrum andastofnum og þeir hafa verið við það að hverfa af Tjörninni. Æðarfuglinn er þar á meðal og var því ákveðið að efla stofninn með ræktun.
Ungarnir fá heimkynni í friðlandinu í Vatnsmýri og þar munu þeir fá fóður og skjól í allt sumar. Fólk er beðið um að sýna aðgát við Tjörnina á meðan ungarnir eru í aðlögun. Vonandi munu þeir dafna vel og ná fullum þroska, temja sér lífshætti villtra fugla og á endanum hefja sjálfir varp við Tjörnina. Það verður spennandi að fylgjast með framvindunni á næstu mánuðum og árum.
Umhverfis- og skipulagssvið stendur að verkefninu með dyggri aðstoð Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og í samráði við Norræna Húsið.