Borgarstjórn ákvað á sínum síðasta fundi 3. júní að leggja til fjórar milljónir króna til að innleiða stefnumarkandi skýrslu skóla- og frístundaráðs um aðgerðir til að vinna gegn áhrifum staðalmynda.
Starfshópur undir stjórn Auðar Magndísar Auðardóttir, verkefnisstjóra Jafnréttisskóla SFS, skilaði nýlega af sér skýrslunni Út fyrir boxið um hamlandi staðalmyndir í lífi barna og unglinga.
Skýrslunni var í gær fylgt eftir á fjölsóttu málþingi þar sem aðalfyrirlesari var Dr. Dana Edell, einn af stofnendum Spark-hreyfingarinnar í Bandaríkjunum sem vinnur gegn klámvæðingu og áhrifum staðlaðra kynímynda. Hún hélt einnig líflegar vinnusmiðjur fyrir kennara og starfsfólk frístundamiðstöðvanna í borginni.
Meðal þeirra verkefna sem hrint verður í framkvæmd fyrir fjárveitingu til þessa verkefnis er heimasíða með hugmyndabanka sem kennarar og starfsfólk frístundamiðstöðva geta nýtt í sinni vinnu. Þá verður námsefni sem dr. Dana Edell hefur útbúið þýtt á íslensku. Það efni miðar að því að efla jákvæða kynímynd unglinga og vinna gegn skaðlegum áhrifum klámvæðingar og staðalmynda.
Í þriðja lagi verður farið af stað með þróunarverkefni í samstarfi við frístundamiðstöðvar um að ná til unglingsstúlkna sem eru í áhættu fyrir kvíða og vanlíðan.
Í greinargerð með tillögunni sem borgarstjórn samþykkti segir:
- Fjölmargar rannsóknir hafa staðfest að líðan stúlkna versnar mjög þegar kemur fram á unglingsár og sjálfstraust þeirra fer dalandi. Í skýrslu starfshóps um líðan stúlkna og hamlandi áhrif staðalmynda í lífi barna og unglinga eru raktar fjölmargar ástæður þessa. Meðal annars eru teknar saman niðurstöður ýmsa rannsókna og málflutnings sérfræðinga er komu á fund hópsins um að staðalmyndir um hlutverk og eðli kynjanna og skortur á jafnrétti ýti undir þessa vanlíðan. Í ljósi þessa er nauðsynlegt að unnið sé markvisst að bættri líðan stúlkna, meðal annars með íslensku efni sem frístundamiðstöðvar og skólar geta nýtt til að vinna að þessum málaflokki.