Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholts fer fram í Gerðubergi miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20.00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, en auk þess mætir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Fundarstjóri er Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts. Íbúar í Breiðholti eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.