Að verða foreldri
Gottman námskeiðinu „Að verða foreldri“ er ætlað að hjálpa væntanlegum foreldrum að takast á við þær breytingar sem verða í parsambandinu með tilkomu barns og þekkja grundvallar atriði í þroska barna fyrstu þrjú árin.
Lögð er áhersla á
•að efla vinatengsl og nánd í sambandinu,
•að stjórna ágreiningi,
•að vera samstillt í uppeldishlutverkinu,
•að þekkja grundvallaratriði í þroska barna
•að vita hvert hægt er að leita eftir stuðningi og ráðgjöf þegar þörf er á.
Námskeiðið er samtals 10 klukkustundir og fer fram 26. og 27. apríl frá kl 10:00-16:30 með hádegis- og kaffihléum.
Námskeiðið kostar kr. 35.000,- en veittur er 20% afsláttur af námskeiðagjaldi ef bókað er fyrir 12. apríl
Kennslan fer fram með fyrirlestrum og par- og einstaklingsverkefnum.
Námskeiðið er á vegum Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd (RBF).
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Ástþóra Kristinsdóttir ljósmóðir, Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi og Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir leikskólakennari.
Allir verðandi foreldrar og foreldrar barna til 3ja ára eru velkomnir.
Skráning og frekari upplýsingar hjá RBF, rbf@hi.is