8. september er alþjóðlegur dagur læsis og bókasafnsins

Skóli og frístund

""

Í mörgum grunnskólum borgarinnar er í dag haldið upp á alþjóðlegan dag læsis og hafa börn og ungmenni átt notalegar stundir við lestur góðra bóka. Rannsóknir sýna að lestrarhegðun foreldra skiptir miklu fyrir yndislestur barna og það að lesa fyrir börn býr þau hvað best undir formlegt lestrarnám.   

Í Fossvogsskóla var í morgun næðisstund þar sem allir nemendur, starfsfólk og þeir foreldrar sem sáu sér fært að mæta lásu sér til yndis. Í Austurbæjarskóla  er líka skemmtilegt drekalestrarverkefni í gangi og aðrir skólar fara sínar leiðir í að efla yndislestur sinna nemenda og starfsfólks.Til dæmis hafa nemendur lesið upp úr uppáhaldsbókum eða ljóð sem hafa snert þá.  



Þá fer nú fram landskönnun meðal grunnskólanemenda um vinsælustu barnabækurnar þar sem lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækurnar sem komu út á árinu 2013. Almennings- og skólabökasöfn landsins veita verðlaunin á hverju ári fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina erlenda.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sendi í dag foreldrum reykvískra grunnskólabarna eftirfarandi bréf til að hvetja til yndislestur í bókmenntaborginni: 

Kæru foreldrar!

Árið 1965 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar að  gera 8. september að árlegum degi læsis til að vekja athygli á mikilvægi læsis og lestrarfærni um allan heim. Af því tilefni, og auðvitað vegna þess að nú er skólastarf vetrarins komið á fullt, vildi ég minna okkur foreldra á að gefa okkur tíma til að lesa með krökkunum í vetur. Ég tek það fram að ég mætti sjálfur vera duglegri og ætla að taka mig á. Ekki bara fyrir krakkana, heldur ekki síður mig, því þetta er gaman. Rannsóknir sýna líka að pabbarnir skipta miklu máli í þessu. Sérstaklega fyrir strákana.

Langaði að nefna við ykkur tvennt skemmtilegt til að hafa á bak við eyrað. Í október er sérstök lestarhátíð á vegum Bókmenntaborgarinnar en UNESCO útnefndi Reykjavík með því sæmdarheiti 2011. Hátíðin heitir – Tími fyrir sögu og er tilvalin til þátttöku (sjá slóð hér að neðan).

Landsleikur í lestri, lestarævintýrið  Allir lesa, hefst svo 17. okt. og lýkur 16. nóv. nk. á Degi íslenskrar tungu. Um er að ræða liðakeppni þar sem gaman er að taka þátt og fylgjast með: fjölskyldur, vinnustaðir, vinahópar og aðrir geta myndað lið og haldið lestrardagbók. 

Í stuttu máli: Njótum vetrarins framundan – og munum að lesa saman!

Með kærri kveðju

Dagur B. Eggertsson. borgarstjóri

Nánari upplýsingar um þessi verkefni er að finna á vef Bókmenntaborgarinnar 

Borgarbókasafnið heldur úti fjölbreyttri starfsemi sem er öllum opin.

Á Foreldravef Reykjavíkurborgar er ýmiss fróðleikur um málörvun og lesskilning barna. 

Njótið dagsins við lestur góðra bóka!