Yngstu börnin í leikskólanum Bakkabergi taka spjaldtölvunni fagnandi og kunna vel að nota hana í þroskandi leik.
Það kom Rögnu Lind leikskólakennara á yngstu deildinni Lundey á óvart hversu mörg börn vissu nákvæmlega hvernig spjaldtölvan, sem er af gerðinni Ipad, virkaði. Þau fóru beint í að leysa ýmis verkefni sem voru lögð fyrir þau í gegnum kennsluforrit og höfðu gaman af. Sumum börnum þurfti aðeins að leiðbeina, en voru svo fljót að tileinka sér leikinn. „Í framtíðinni sé ég tækifæri í að nota spjaldtölvuna í málörvun fyrir þessi börn og jafnvel taka inn fleiri kennsluforrit“, segir Ragna Lind.
Leikforritin í spjaldtölvunni má nota til að læra að þekkja í sundur föt, læra bókstafina, tölur og fl.
Hér má sjá myndband af börnunum með spjaldtölvuna.