Yfirlit um byggingarframkvæmdir í Reykjavík 2012

Framkvæmdir

""

Skoða má ársskýslu byggingarfulltrúa fyrir árið 2012 hér.

Fyrir árið 2012 þá var veruleg aukning á samþykktum byggingaráformum og byggingarframkvæmdum í samanburði við árið á undan. Á árinu 2012 voru samþykkt byggingaráform fyrir samtals um 77 þúsund fermetra samanborið við um 45 þúsund fermetra árið 2011. Um tvöfalt meira byggingarmagn var samþykkt árið 2012 en árið 2011 og fjórum sinnum meira en árið 2010 þegar einungis um 18 þúsund fermetrar voru samþykktir. Samþykkt byggingarmagn árið 2012 var sambærilegt við árið 2009.

Á árinu 2012 voru samþykktar 444 nýjar íbúðir, en þar af voru 216 stúdentaíbúðir og 95 íbúðir í endurnýjuðum byggingarleyfisumsóknum og óútgefnum byggingarleyfum. Fjöldi nýrra íbúða í útgefnum byggingarleyfum var 356 íbúðir og að undanskildum stúdentaíbúðum er það sambærilegur fjöldi og árið 2009 þegar útgefin byggingarleyfi voru fyrir 159 íbúðir. Miðað við árið 2010 þá var eingöngu hafin smíði á 10 íbúðum og 113 árið 2011.  Er því um töluverða aukningu að ræða í byggingu nýrra íbúða frá árinu 2009.

Fullgerðar íbúðir árið 2012 voru 141 og 322 íbúðir voru skráðar á fokheldu byggingarstigi. Fjöldi íbúða í byggingu að fokheldu byggingarstigi voru 551 íbúðir að meðtöldum íbúðum sem smíði var hafin á. Byggingarmagn alls húsnæðis sem var fullgert á árinu var um 56 þúsund fermetrar og og þar af byggingarmagn tengdu íbúðarhúsnæði fyrir um 34 þúsund fermetra.