World Outgames haldnir á Miami árið 2017

Íþróttir og útivist Mannréttindi

""

World Outgames leikarnir verða haldnir í Miami Beach árið 2017. Þetta var tilkynnt á fundi sem GLISA (Gay Lesbian International Sports Association)  hélt í Antwerpen í kvöld.



Valið stóð á milli Miami og Reykjavíkurborgar og fór þannig fram að stjórn GLISA og sendinefndir borganna tveggja héldu kynningar á sínum borgum. Að því loknu var opnað fyrir spurningar og svör. Sendinefnd GLISA kynnti svo reynslu sína af borgunum tveimur á lokuðum fundi. Að því loknu fór fram rafræn kosning á meðal eitt hundrað aðildarfélaga GLISA og niðurstaðan varð sú að Miami varð fyrir valinu.



World Outgames er íþrótta-, menningar- og mannréttindahátíð sem haldin er fjórða hvert ár og stendur yfir í tíu daga. Næsta  hátíð  fer fram í Antwerpen í júlí og hefur þá hátíðin verið haldin tvisvar í Evrópu í röð. Kann það að hafa haft áhrif á valið.



Jón Gnarr, borgarstjóri óskaði fulltrúum Miami Beach til hamingju. Hann sagði að þrátt fyrir að Reykjavík hefði ekki orðið fyrir valinu þá hefði undirbúningurinn fyrir útnefninguna vakið talsverða athygli á Reykjavíkurborg. „Það að komast í tveggja borga úrslit hefur vakið gríðarlega jákvæða athygli á Reykjavík sem viðburðastað. Sú vinna sem var lögð í kynninguna mun koma okkur til góða og við sjáum fram á mörg spennandi verkefni því margar dyr hafa opnast fyrir þátttöku borgarinnar í hinum ýmsu viðburðum,“ sagði Jón Gnarr.