Villt blóm og tónleikar í Viðey

Umhverfi Menning og listir

""

Dagur hinna villtu blóma verður haldinn hátíðlegur í Viðey í samstarfi við Grasagarðinn í Laugardal sunnudaginn 16. júní. Þennan dag gefst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma göngu¬ferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa.

Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðsins sér um leiðsögnina í Viðey, greinir með okkur tegundir og fjallar um gróður svæðisins. Gangan hefst kl. 12.30. Siglt er frá gömlu höfninni í Reykjavík kl. 12.00 og frá Skarfabakka frá 12.15. Allir eru velkomnir! Klukkan 16.00 sama dag hefjum við tónleikaröðina TÓNHVÖRF í Viðey með hinum kraftmiklu KÍTÓNS konum sem ætla að gleðja okkur með tónlistarflutningi í eyjunni í allt sumar. KÍTÓN er nýstofnað félag kvenna í tónlist á Íslandi sem hefur það að markmiði að sýna fjölbreytni tónlistarkvennanna enda munu þær leiða saman ólíkar stefnur úr ýmsum áttum í Viðeyjarstofu í sumar. Dúóið Kolka stígur fyrst á stokk en það skipa þær Arnhildur Valgarðsdóttir og Heiða Árnadóttir. Þær munu frumflytja íslenskt verk eftir Ásbjörgu Jónsdóttur við ljóð Matthíasar Johannessen, Veröld þín. Einnig munu þær flytja ljóð með spuna og kristallsglasameðleik. Heiða Árnadóttir ætlar að flytja verk eftir John Cage en einnig flytja þær barnalagaflokk eftir skoska tónskáldið Theu Musgrave og lög eftir bandaríska tónskáldið Samuel Barber. Tilvalið fyrir fjölskyldur, rómantísk pör eða göngugarpana sem hafa gengið um eyjuna og skoðað hennar villtu blóm fyrr um daginn. Það kostar 2.700 krónur á tónleikana og er sigling með ferjunni innifalin. Miðasala fer fram á miði.is. Þeir sem hafa þegar siglt út í eyju geta að sjálfsögðu keypt sér miða eingöngu á tónleikana í Viðeyjarstofu.